|
:: miðvikudagur, júlí 19, 2006 ::
Geggjað veður
Vá hvað það er gott veður hérna í bænum akkúrat núna:-) Enda fáum við klukkutíma í mat vegna veðurs, ekki leiðinlegt það. Vikan er bara búin að líða ótrúlega hratt þrátt fyrir að prinsessan okkar sé í sveitinni hjá ömmu, afa og co. Hún hefur það líka svo ofsalega gott veit ég, hefur varla tíma til að tala við mömmu sína í símann. Enda er heyskapur og þá er sko mikið að gera.
Síðustu helgi fórum við í 25 ára afmæli til Árna og Steina á Pravda. Þar var rosa stuð og enduðum við Raggi á Hlölla um þrjúleytið og svo í leigubílaröðina. Bara alveg eins og í gamla daga:-) hehehe, ég segi gamla daga því það er MJÖG langt síðan ég hef farið á djammið niður í bæ.
Fór svo í ótrúlega góða ferð í IKEA í gær, ákvað rúm og tvær hillur sem Rakel Gígja fær í nýja herbergið sitt á Laugateignum. Bara spennandi að fá sérherbergi og VÁ hvað ég er fegin að losna kannski við eitthvað af þessu dóti hennar úr stofunni.
Svo verður bara brunað norður strax eftir vinnu á föstudaginn og verðum við mæðgur í fríi í næstu viku en Raggi þarf því miður að vinna:-(
Top ^
-------------------------------------------------------------------
:: laugardagur, júlí 15, 2006 ::
3 vikur að verða búnar af fríinu
 Rakel Gígja og Móses 27 vetra nýjasti og besti vinur hennar
Þetta frí bara búið að vera snilld, man varla hvar ég vinn ég er orðin svo endurnærð á líkama og sál. Allt Reykjavíkurstress löngu horfið og ég veit ekki hvort það sé neitt annað í stöðunni en að spítta mig aðeins áður en ég keyri suður á morgun til að komast í gírinn. Er búin að vera semsagt í sveitinni í 3 vikur, LM, hestaferð og rólegheit í sveitinni. Bara NICE... En svo er það bara vinnan sem bíður, Gígjan verður á flakki á milli Skagafjarðar og Húnaþings næstu vikuna og svo kem ég norður í vikufrí þegar Unglist er og hestamót vonandi upp í Hvammi.
En í dag á Marteinn Breki 2 ára afmæli, besti vinur Rakelar og er hún farin að sakna hans ofsalega mikið. Ég held að Breki verði hissa þegar þau hittast næst þar sem Rakel ákvað að fara að tala alveg í fríinu og hefur orðaforðinn aukist um 100% á þessum tíma svo hún geti nú stjórnað foreldrunum alveg.
En tíðindi dagsins eru að Ingunn frænka mín og Valdi eignuðust strák í morgun, 16 merkur og 54 cm og vil ég óska þeim enn og aftur innilega til hamingju. Ekkert smá flottur prins, var svo heppin að fá senda mynd af honum í símann. Tæknin í dag:-)
Top ^
-------------------------------------------------------------------
:: sunnudagur, júlí 09, 2006 ::
Yndislegt frí
Fríið búið að vera frábært, vorum í Skagafirðinum fyrstu eina og hálfa vikuna á Landsmóti og í heimsóknum. Það var alveg frábært og má sjá allt um LM á Grafarkotssíðunni. Síðan erum við búin að vera í Húnaþingi vestra í 5 daga og erum lögð að stað í hestaferð og var fyrsti dagurinn í dag. Annars höfum við bara verið að ríða út og hafa það gott. Litla daman Eydísar og Óla var svo skírð í gær og heitir daman, Júlía Jara. Skírnin var í Hvammstangakirkju og veislan á Þinghúsinu. Við Raggi sáum um heitu réttina og fleira, þannig að það var nóg að gera hjá okkur eins og Stellu, Hjördísi, mömmu, Fanney, Elísu og fleirum. Veislan var æðisleg og finnst mér nafnið á prinsessunni mjög fallegt. Myndir og fleira má sjá á nýju heimasíðu Júlíu. Síðan áttu bæði Rakel Gígja og Raggi afmæli um daginn, Raggi minn 25 ára og ákvað ég að gefa honum hest. Og hann fékk meira að segja að velja á milli tveggja Óratorssyni annars vegar undan Gráðu frá Grafarkoti og hins vegar undan Eldvör frá Grafarkoti. Og hann valdi Gráðusoninn Vott frá Grafarkoti.
Top ^
-------------------------------------------------------------------
|